Píkutal!

Ég er þessi feimna týpa, en af einhverjum ástæðum er óeðlilega auðvelt fyrir mig að tala um píkur. Píkur hér og þar, við alla og enga (svona þegar ég dett í píku rökræður við sjálfa mig), hægri og vinstri. Píka, píka, píka.

Hef aldrei skilið það vandamál að vera ekki innan fullkomna lúksins. Við hvað mæla konur!?? Hvað er fullkomin píka? Ég get breytt mörgu á líkamanum mínum (án aðgerða), en píku breytingar eru erfiðar. Og hverjum er ekki sama? Og þó það væri til hin fullkomna píka, litarhaftið, stærð, lögun, hverjum langar þá að hafa alveg eins píku og vinkonan og nágranninn? Afhverju er fjölbreytnin ekki leyfð eða samþykkt? Ég er allavega sátt við mína píku, en þú? Það þýðir samt ekki að allskyns vandræði eða sjúkdómar hoppa framhjá píkunni og þú garanteruð um hamingjusamt vandræðalaust píkulíf. 

Ég er ein af þeim ”heppnu” sem byrjuðu á kvensjúkdóma-feril minn mjög ung, eða rúmlega 15 ára. Fékk vinkonu mína með til kvennsa og útpældi ALLT sem gæti gerst. Sat á biðstofunni með smá stresshnút í maganum. Þegar ég kom inn á stofuna breyttist einhvern veginn allt og ég talaði svo mjög opin um mín vandræði (innri kynfæri, ekkert píkusamhengi), en var allan tíman viss um að ég þyrfti að setjast upp í þennan hvíta stól með tilheyrandi statífum fyrir fæturnar með píkuna í brjóst-hæð við kvennsa. Og hvað ætli kvennsinn hugsi!?

En svo sagði kvennsi að hún vildi sjá mig aftur eftir einhverjar vikur, engin skoðun í þetta sinn! Og ég sem var orðin nokkuð forvitin, varð frekar vonsvikin. Nú þurfti ég að bíða í nokkrar vikur enn til að vita hvernig þessi ansans skoðun fer fram, semsagt meiri stress!

Ég hafði valið kvenkyns – lækni, enda algjörlega út í hött að velja að ásettu ráði einhvern karlmann til að skoða mínu píku. Nei takk! Og afhverju í ósköpunum ætti karlmaður að vilja skoða svona margar píkur!?

Anyway. Fór í skoðun nokkrum vikum seinna, og viti menn – það var EKKERT mál! Og í dag, eftir margar skoðanir er ekkert öðruvísi að fara til kvennsa en tannsa.

Og svo þroskaðist ég. Og fékk áhuga á píkum, kynfærum, og  öllu því sem fylgir! (þó ekki kynlífslega séð). Og svo fékk ég áhugann á náminu mínu – og meira áhuga á ljósfræðinám.
Og svo byrjaði ég í hjúkrunarnámi. Ég titraði þegar ég átti að þvo rúmliggjandi konu í fyrsta sinn. Ekki að ég hafði ekki séð píku áður, en nú átti ÉG að þrífa hennar kynfæri, en fannst samt verst að það hlýtur að vera meira erfitt fyrir konuna, en mig! Þetta er jú bara vinnan mín, en hennar píka, kynfæri. Píkuhræðslan óx af mér, sem betur fer.

Og úr því varð starfsnám á kvennsjúkdómadeild! Þar sem ég sé allskonar píkur. Víðar, þröngar, of stórir barmar, næstum - ósjáanlegir barmar, legsig. Og allan tíman stend ég við hliðiná karlkyns! kvennsa, án fordóma. Afhverju ætti hann ekki að hafa jafn mikinn áhuga á faginu, eins og ég? (eða öfugt).

En allra best finnst mér þegar fólk treystir mér fyrir þeirra vandamálum. Píkuvandamálum. Vinir, og meira að segja ákveðnir fjölskyldumeðlimir. Og ég set á mig faglegu – gleraugun, gleymi tengslum okkar í nokkrar mínútur og reyni að leiðbeina í rétta átt fyrir vandamálið. Og núna get ég sko sagst þekkja suma kannski aðeins of vel! ;)

Ég get næstum kallað mig ”flúent” í píkutali á dönsku, og ensku. Þarf að keep up the good work, og æfa mig smá meira í íslensku píkutali. Og þá eru allar brautir opnar.

Píkutal, píkutal! Get ég hjálpað?

Design-a-Vagina


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært blogg Lena! Er alveg að elska það...þú ert uppáhalds píkulæknirinn minn allavega!

Hildur Ósk (IP-tala skráð) 27.4.2011 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband