Kostir ( og gallar )

 Jæja .. koma svo, endilega komið með alla mína kosti! Það er eiginlega ekkert lítið erfitt að finna marga kosti um sjálfa sigFootinMouth. Eina sem ég finn er "stundvís" því jújú, það á alveg við. En .. veit eiginlega ekkert fleira Pinch

þannig .. auðvitað spyr maður þá sem þekkja mann besti - vinina og vandamenn.

þannig koma svo ... hverjir eru mínir kostir? ( og jújú, ef þið vitið einhverja augljósa galla .. þá má alveg koma með þá líka Tounge ( eins og einhver þori því Wink )  

 

Lena Pena  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Lena mér líst vel á stelpuferð á næsta ári til köben með mömmu þinni :)

Kostir þínir eru: þú ert ótrúlega dugleg lætur greinilega drauma þína rætast þó á móti blási stundum. Búin með framhaldsskóla og komin til danaveldis ein aðeins 18 ára geri aðrir betur Lena mín. Já kostirnir eru kraftur, dugnaður, jákvæðni, þrjóska (það er líka kostur) og staðföst í því sem þú ætlar þér að gera þá meina ég þú framkvæmir það sem þú hefur ákveðið að gera. Svo ertu líka kát og skemmtileg og það er alltaf stutt í hláturinn.

Áslaug (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 00:17

2 identicon

Metnaðargjörn, hreinskilin, lýgur ekki, góður húmor, barngóð, sjálfstæð, hefur sterkar skoðanir á ýmsum hlutum, góðhjörtuð og sönn vinkona!

Julie (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 19:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband