Stjörnuspá á mbl :)

10.04.07

Á erfiðum tímum finnur þú þér bandamann svo þú sért ekki einn að basla. Það sama á við á góðum tímum einsog í dag. En núna finnur bandamaðurinn þig.

Afhverju er ekki sá möguleiki í boði að blogga um stjörnuspá sína – þá meina ég eins og þegar maður bloggar um fréttir og þá gæti maður líka lesið um hvað aðrir hafa að segja um sína stjörnuspá.

Ég les mína stjörnuspá á www.mbl.is á hverjum einasta degi – stundum nokkrum sinnum á dag. Er samt ekkert eitthvað geðveikt að trúa þessu en tengi oft á einhvern máta við líf mitt – bara mér til skemmtunar.
Held samt að það sé alltaf hægt að tengja stjörnuspána við eitthvað sem er að gerast í lífinu – en þó ekkert endilega út af því að stjörnuspáin sé rétt –heldur bara af ”algjörri tilviljun” J

Ekkki það að ég geti alltaf tengt við hana, eins og núna átta ég mig ekkert á hvað þetta getur verið – enda meira svona eitthvað sem maður getur tengt eftir á. Sjáum bara hvernig þetta verður eftir daginn í dag =)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já stjörnuspáin... ég er alveg hætt að lesa hana... ætla að fara að byrja á því aftur! Farin að lesa hvar við tvíburarnir munum gera af okkur í dag! Bleeesss!!

Julie (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 12:30

2 Smámynd: Lena Ósk

og hvað brölluðu svo tvíburarnir í dag?  ;) =)  Og passaði sú stjörnuspá á einhvern máta við daginn þinn í dag?     

Lena Ósk, 10.4.2008 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband