Færsluflokkur: Bloggar
Loksins Loksins !
3.1.2008 | 23:34
Þarf maður ekki að gera upp það ár sem var að líða ??
Árið í heild : Ótrúlegt en satt þá leið mér ótrúlega vel allt árið, það var enginn tími sem ég gjörsamlega var að gefast upp, eða .. það hefur alla vega ekki verið það að slæmt að ég muni það núna. Áður hafði árið 2004 alltaf verið mitt "uppáhalds" ár .. en munurinn á árinu 2004 og 2007 var það að það gerðist svo margt leiðinlegt líka árið 2004. Þá var ég í viðbjóðslega leiðinlegum skóla ( eða já, skólinn var fínt, "fólkið" ekki J ), mér leið ekkert of vel heima. En á móti kom að ég átti ótrúlega góða vini úr athvarfinu sem ég eyddi öllu sumrinu með - Anna kom til mín til dk, ég fór með Önnu og fjölskyldu í sumar"bústað" á Skógum, og ekki má gleyma yndislegu ferðalagi á Strandir ( hólmavík og Trékyllisvík )
EN árið 2007 toppaði samt allt þetta =D
og ég held alveg örugglega að ég geti ekki einu sinni komið með neina leiðinlega atburði, nema einn - sem varð samt ágætt í lokin :p En sá atburður fer samt ekki inn í bloggið J
Í byrjun árs tók ég lokapróf í ensku 303 - í þriðja sinn ( já ég er/var yndislega léleg í ensku =S ). Eftir prófið hringdi ég næstum grátandi í pabba ég væri sko fallin - og væri EKKI að fara útskrifast. En svo pældi ég ekkert meira í því, enda ekki búin að fá niðurstöðuna úr prófinu. Ég rétt skreið - en vá hvað ég var ánægð og þakklát fyrir að eiga ótrúlega góðan ensku kennara sem hafði trú á mér.
Í byrjun árs ákvað ég líka hvað ég ætlaði að gera eftir útskrift J stuttu seinna fékk ég nýju myndavélina mína, sem ég er búin að taka yfir 10.000 myndir á. ... af öllu nánast haha
Í mars var svo námsmaraþon sem Kalli Klara og ég sáum um. ( þau mest samt ) ... og jújú, ætli það hafi ekki bara heppnast ágætlega vel, þó að ég hafi verið svolítið þreytt þarna í lokin - eftir að hafa þrifið ALLT eldhúsið hátt og lágt ásamt Klöru, þegar við vorum ekki að læra. Svo á leiðinni heim fannst mér ég tala alveg heilan helling við Kalla, komst svo að því þegar hann var búinn að keyra mig heim að ég hafði ekki sagt eitt orð alla leiðina heim... vegna þreytu ( en þakka samt Kalla fyrir að hafa keyrt mig heim, þó hann hafi að öllum líkindum verið jafn þreyttur og ég. )
Í enda mars fór ég í bara æðislega útskriftarferð, 6 dagar á Tenerife. Samt eitt að því besta við ferðina var örugglega að ég kynntist Klöru minni meira en ég gerði áður J ... ferðin var bara æði í heildina, og þó þið neitið kannski að trúa því - þá er ég ennþá með smá far síðan í ferðinni - ógeðslega viðbjóðslega ljótt far sem eyðilagði nokkrar myndir á útskrift ( tékkið á myndunum, og þá sjáiði hvað ég er að tala um )
Eftir Tene byrjaði ég að vinna í 10 -11 ( újé! ), vann alla páskana ... og svo aðra hvora helgi eftir það. Ólíkt öllum öðrum sem unnu í 10 11 þá, þá fannst mér best að vera á kassa. Því miður kemur alveg yndislega ókurteist fólk, en á móti kemur allskyns fólk á öllum aldri .. sem er bara frekar ánægt með lífið ...
Þar sem ég var búin að ákveða þarna að fara til Danmerkur beint eftir skóla .. var planið að fljúga út þann 10. Júlí. En ég kynntist konu í 10-11 sem spurði mig hvort mig langaði ekki að vera JC í CISV búðum í Júlí .. og það á Íslandi. Það var í enda maí sem hún spurði ... og þar sem ég hafði tækifæri á því að vera alveg út júlí hérna á Íslandi þá ákvað ég bara að slá til, og fara svo bara ekki til Dk fyrr en eftir búðirnar.
Skólinn kláraðist svona næstum því um miðjan júní. Ég kláraði alla vega öll prófin í Hraðbraut. EN nördið ég gat náttúrulega ekki sætt mig við að útskrifast bara af málabraut, þannig var líka í einum stærðfræði áfanga í sumarskóla FB. ( stæ 503 - eini áfanginn sem mig vantaði upp í að útskrifast líka af náttúrufræði braut ). Minnir að ég hafi tekið prófið þann 21... og enn og aftur var ég geðveikt fúl eftir prófið - því ég væri sko fallinn. En neinei- ég náði með bara ágætis loka einkunn.
Seinustu 2 vikurnar í skólanum voru bara æðislegar. Vorum í 2 fögum, lífsleikni og tjáningu 203. .. ég hef aldrei lært jafn mikið ( um sjálfa mig líka ) á 2 vikum og ég gerði þessar 2 vikur. 3-4 júlí fórum við svo skólaferð til Þórsmerkur - og böðuðum okkur þar í sólinni, grilluðum mat og vorum í einhverjum "leikjum" allan tímann. Ekkert nema gaman ... án djóks.
Ég byrjaði að "vinna" sem JC í CISV búðunum helgina áður en ég útskrifaðist. Fyrsta helgin var bara "leaders, JC's og Staff" og vá hvað þetta var æðisleg helgi. Þeir sem vinna í CISV búðum, búa yfirleitt allan tímann í búðunum, en því miður hafði ég ekki tækifæri á því að vera alla fyrstu vikuna - því ég þurfti víst að klára skólann.
Föstudaginn fyrir útskrift fór ég svo út að borða með nokkrum úr Hraðbraut og .. svo í nokkra tíma bíltúr með Dóru, Júlíönu og Elfu.
Á útskriftardeginum þann 7.júlí ( 07.07.07) komu Snæja og Steinar að sækja mig um morguninn og við fórum í kirkjuna þar sem við útskrifuðumst. Ég held ég hafi sjaldan verið jafn stolt af sjálfri mér og þann daginn. Daginn eftir var svo veislan ... ég hef bloggað áður um útskriftina, og ætla því ekkert að fara í smáatriðin hérna - eina sem ég get sagt er að öll helgin var bara æðisleg.
Ég hélt áfram að vera JC .. og bjó því restina af júlí mánuðinum í Hjallaskóla í Kópavogi. Ég fór í bláa lónið, gullna hringinn, endalaust af leikjum og söng ( eða þóttist syngja ) lullabies á hverju einasta kvöldi. Þetta var bara æðislegur mánuður ... og ég mæli eindregið með CISV búðum .. ef þig langar að upplifa það að vera barn aftur :P ( sérstaklega ef maður er JC, eða 11 ára ;) )
Búðirnar kláruðust þann 26 júlí, og ég flutti til Danmerkur þann 27. Um kvöldið 26 var ég með Júlíönu Rakel og Önnu margrét. Fórum í ísbíltúr, lágum á gólfinu heima hjá pabba og horfðum á alla litlu fiskana sem voru að "fæðast" og töluðum um allt. Rakel fór svo fyrst heim, Anna svo og svo var ég með Júlíönu eiginlega alla nóttina. Það var ekki fyrr en um 4 sem ég ákvað að fara koma mér heim, þar sem ég þyrfti að vakna klukkan 7 til að fá far með pabba heim til mömmu og byrja á því að pakka niður - þar sem flugið var um 5.
Júlíana kom svo til mín aftur 27 - bara svo ég gæti "kvatt" hana. Mamma keyrði mig svo upp á flugvöll og Mikael kom með. Á flugvellinum hitti ég hópinn úr búðunum frá Columbíu- sem í raun held að hafi bjargað mér frá því að gráta þegar ég var að kveðja mömmu og Mikael ( og ég bað hana líka vinsamlegast að gráta ekki, ég gæti ekki sleppt því ef hún myndi byrja ... ) þannig þett gekk bara vel.
Amma, afi og Sæþór sóttu mig á flugvöllinn í Köben, mér finnst alltaf jafn gaman að sjá ömmu og afa, enda ekkert lítið mikið "ömmu og afa barn" þegar ég var lítil. Og jahh, ætli ég hafi ekki verið ligeglad með að hitta Sæþór ;)
2 dögum seinna ákvað ég að yfirgefa ömmu mína og afa eftir stutt stopp og flytja þar sem ég heima núna....
fyrsta mánuðinn hjóluðum við um allt ... eða svona næstum, fórum í Tívolí, snædís "litla" varð 4 ára og svo byrjaði skólinn hjá þeim öllum.
Fyrstu mánuðina eftir að ég flutti hingað var ég heima með Eið, yngsta strákinn, þar til hann komst inn á vöggustofu í byrjun nóvember. Ef ég á að segja sannleikann þá leið tíminn svo ótrúlega hratt frá því að ég kom hingað alveg til núna, að ég bara man frekar fáa atburði.
EN ég held ég gleymi nú ekki helginni sem ég átti afmæli ;)
ég á bara svo "yndislega" vini.... að einn þeirr ákvað að koma í heimsókn til mín, á afmælisdeginum mínum. Ooog þetta var samt ekki bara einhver, heldur manneskja sem ég er búin að þekkja í 4 ár á netinu, og aldrei hitt áður ... og þarna ákveður hann að koma bara til dk til að heimsækja mig =)
Ooog við vorum saman frá föst- sunnudags, nema á nóttunni, þar sem ég var ekki alveg að fara troða mér í það að vera á hótelherberginu næstum alla helgina ;) ... við gerðum samt afar lítið ... eitt stykki erótískt safn, kaffihús ( bjórdrykkja og kók ) ... og svo ekkert annað eiginlega haha =D En mér þótti samt afar vænt um þessa helgi, enda alltaf gaman að kynnast betur vinum sínum.
Um miðjan desember vaknaði ég eina nóttina með einskonar "bruna/sviða" í lærvöðva. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem ég vaknaði svona, en í þetta skiptið ákvað ég að standa hratt upp og vona að þetta færi burt smá saman ( vanalega fer þetta bara "sjálfkrafa" á svona 30-60 mín, en þá má ég heldur EKKERT hreyfa mig á meðan .. - og þetta gerist bara á nóttunni ) En alla vega - það fór ekki eins og ég hafði vonast og það leið yfir mig af sársauka. ( ooog mér tókst að eyðileggja ruslatunnu sem ég datt á )
Í kjölfar þess ákvað ég nú að fara koma mér til læknis - vegna þess að sársaukinn er frekar mikill þegar ég vakna- en sjaldan eins mikill og hann var þegar ég stóð upp. Hjá lækninum komst ég að því að lærvöðvinn væri eitthvað skaddaður ( skaðaður ?) og ég þarf að byrja í sjúkraþjálfun núna í byrjun ársins 2008.
21. des fór ég svo til ömmu og afa þar sem ég var yfir jólin. Ekkert afar spennandi, en þetta var samt fínt. Kom heim 27des og sprengdum svo gamla árið burt með frekar mikið af flugeldum .. og skáluðum kampavíni. ... og þá var árið búið.
Ég á mér eitt áramóta heiti, í raun og veru eru þetta mörg "lítil" áramóta heit, en þau falla samt öll undir sama hattinn : Að verða betra manneskja.
Gleðilegt nýtt ár. !
Bloggar | Breytt 4.1.2008 kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
jáhá !
3.1.2008 | 12:45
Það gerist seint að ég myndi bjarga kyrkislöngu, sama af hvaða stærð hún væri þá gæti ég einfaldlega aldrei hafið mig í það að bjarga "greyinu". Það sem mér finnst enn "skrítnar" er að fólkið hafi virkilega farið með hana á dýraspítala - og þá að öllum líkindum borgað fyrir aðgerðina. En mér finnst nú samt gott að vita af svona góðu fólki - að það skuli enn vera til :)
Þessa dagana minna slöngur mig samt alltaf á alveg hreint yndislegan draum sem mig dreymdi um daginn ... eða ekki. Var að baða mig á einhverri strönd á Balí og fer svo að íhuga eitthvað svona í kringum mig þegar ég er í vatninu. Í fyrstu sé ekki neitt athugavert - en svo sé ég alltaf fleiri og fleiri slöngur ofan ég vatninu. Þegar þær fatta að ég sé að reyna að flýja upp úr vatninu - þá reyna þær að bíta mig ... og við það vaknaði ég .. sem betur fer.
en oh jæja, ætla að klára að gera upp árið sem var að líða .. þannig næsta blogg verður að öllum likindum laaaaangt bloggg :)
![]() |
Kyrkislanga með magapínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég vissi það
2.1.2008 | 12:51
alveg vissi ég það að það gæti komið að góðum notum að vera feitur ! Ekki það að ég eigi von á að það verði einhvern tímann þvottakarfa með nærbuxum af mér nálægt eldhúsinu þar sem ég á heima núna - og ef út í það að er farið .. þá ná mínar ekki alveg þeirri stærð sem við á í þessu tilviki.
oh jæja - það kom allavega þessari manneskju að góðum notum :)
![]() |
Eldur slökktur með stórum nærbrókum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Engin kynhneigð??
28.12.2007 | 20:35
Engin kynhneigð?
Þegar manni leiðist, á jóladagskvöldi, búin að hugsa um næstum allt þá þurfti ég endilega að fara hugsa um kynhneigð. Ekkert endilega mína kynhneigð beint - frekar svona óbeint, eða já .. notum frekar orðið almennt.
Ekki svo fyrir löngu sagði stelpa mér frá sinni einskonar kynhneigð. Hún byrjaði á því að spyrja mig hver mín kynhneigð væri og spurði svo
"En hvað ef það er enginn kynhneigð? - ég held mín kynhneigð sé engin"
Og í raun svaraði hún þarna spurningunni sem hún hafði spurt mig áður að. Þessi spurning hljómar kannski asnalega, en í raun og veru meikar hún vel sense. Ég hef oft sagt við fólk að ég sé "tvíkynhneigð" en bætt svo við - eða í raun og veru verð ég hrifin af manneskjunni, ekki líkamanum. Þýðir þetta þá ekki nokkurn veginn að maður laðast að persónunni en ekki kyninu, og hafi þar af leiðandi enga kynhneigð?
Og þá kemur stundum inn í "já, svo þú blokkerar alveg útlitið bara?". Og alltaf finnst mér þetta jafn æðisleg spurning. Ég meina, flestar þær gagnkynhneigðar stelpur sem ég þekki geta alveg sagt mér hvort stelpa sé ljót, ( ófríð ), falleg ... etc, þó hún sé ekki hrifin af stelpum. Og afhverju ætti ég þá ekki líka að geta sagt hvort manneskja sé falleg eða ófríð, sama af hvaða kyni sú manneskja er.
Ég persónulega held það séu afar fáir sem pæla EKKERT í útliti á öðrum. En öll vitum við þó að manneskja verður fallegri eftir því sem meira maður kynnist henni , ef manni líkar persónuleikinn. Ekki satt?
En já, teljið þið að það sé hægt að hafa enga kynhneigð, eða mynduð þið bara kalla þetta pjúra tvíkynhneigð? EÐA þið yndislega fólk... haldiði bara fram því að allt það tvíkynhneigða fólk sé í algjörri afneitun og vilji ekki viðurkenna að það sé samkynhneigt? ( og nei, mér gæti ekki verið meira sama ef þér finnst það - ég virði skoðanir annarra )
Lena
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
að láta sér leiðast ...
27.12.2007 | 17:09
( skrifað í gærkvöldi/nótt, en sett inn í dag =) )
Er ekki örlítið sorglegt að láta sér leiðast og spila minesweeper að kveldi annars í jólum. Ekki nóg með það heldur að hafa horft á heila seríu af ugly betty allan 2.juledag. ( þökk sé TV zulu ). Það er alltaf sagt að "skemmtilegt fólk" lætur sér ekki leiðast, það finnur sér bara eitthvað að gera. En ég vil meina það að þessi fullyrðing er bara ekki rétt. Þó að ég sé að lesa, prjóna, horfa á ugly betty, spila minesweeper - þá leiðist mér bara samt, þó ég sé að gera eitthvað. Sem betur fer skilja amma mín og afi að mér leiðist - annars væri ég dauðans matur.
Maður verður fljótt góðu vanur - ég einfaldlega sakna þess bara að heyra í Mána, Snædísi og Eið, þó það væri bara til þess að segja þeim "nú hættum við að hoppa í rúminu" ;) ( EKKI einu sinni detta það til hugar að nefna það hvernig þetta verður þegar ég flyt (frá þeim ))
En ég hafði nú samt hugsa mér að fara heim ( ekki til Íslands þó ) á morgun, um leið og amma er búin að vinna. Mér finnst nú samt svolítið sorglegt að hlakka til að fara heim, og þar af leiðandi frá ömmu og afa. En ömmur og afar geta ekki alltaf gert allt, og ég skil alveg vel að það yrði eitthvað skrítið ef þau ætluðu að reyna "skemmta mér" eins og þegar ég var lítil. Eins og þegar afi hoppaði með mig yfir læki í Garðabæ ... þau eldast víst, rétt eins og ég.
Annars hafa jólin verið góð. Fyrstu jólin ekki á Íslandi, og án fjölskyldunnar. Næstu jól verð ég pottó einhvers staðar í útlöndum, Íslandi eða öðru landi ( helst sólarlandi takk ). En jólin eftir það ( semsagt jól 2009 ) langar mig eiginlega hálfpartin að halda jól sjálf hér í danmörku, mig langar alla vega að hafa tækifæri á því að búa einhvers staðar þar sem ég get sett upp allt það fallega danska jólaskraut sem amma gaf mér þessi ár. Mér líður eiginlega eins og að hafa komist í gull, eins og maður er búin að tala mikið um litlu kravlenisse sem manni langar svo í ... og viti menn, amma mín á helling af þessum nisse myndum .. eða ætti ég að segja átti, svona þar sem ég læt hana vita fyrir nokkrum dögum að ég ætla að hirða þetta af henni?
Ég hefði þó viljað óróa safnið .. enda á hún alla Georg Jensen jólaóróana síðan 1984 ( fyrst óróinn kom þá ). En nei nei, pabbi minn er víst búinn að láta ömmu ( mömmu sína ) vita að hann ætlaði sko að fá þá ... ( hehe, hljómar svoldið eins og maður sé að eigna sér allt dót þeirra, en maður verður víst að vera fljótur að eigna sér það sem maður vill,það sem á sér sögu... áður en einhver annar tekur það, og ömmu og afa finnst það allt í lagi .. að ég held )
Eins og alltaf þegar ég er hjá ömmu og afa þá hef ég farið í gegnum öll þau albúm sem þau eiga, bæði frá því þegar þau voru lítil og svo þegar pabbi var lítill, og svo ég og mín systkini. Ég var nokkuð viss um að elsta myndin sem amma mín ætti væri mynd af henni og mömmu hennar. Ætli myndin hafi ekki verið tekin rétt eftir að amma fæddist, eða í september 1945. Svo rakst ég á aðra mynd, rammaða inn. Það sést ekki beint á myndinni að hún sé rosa gömul, en þó af tískunni má sjá að þetta er alla vega ekki síðan í kringum það ár sem ég fæddist. Á myndinni stendur lítil stelpa 4 eða 5 ára ásamt foreldrum sínum. Þar sem þessi stelpa er alveg dökkhærð vissi ég strax að þetta er sko ekki amma mín, enda hún með alveg ljóst hár.
Svo fékk ég að vita það að þetta er mamma ömmu, litla stelpan á myndinni. Þannig ætli þessi mynd sé ekki um svona 80-85 ára gömul. Ég fékk samt líka að vita að þetta væri nú ekki alveg elsta myndin sem amma mín á ... en ég hef þó ekki séð hinar myndirnar.
Eins og alltaf ... þegar ég skoða myndirnar hjá ömmu og afa tek ég alltaf nokkrar myndir sem mig langar að eiga. ( jújú, ég hef fengið leyfi fyrir því ). Í þetta sinn tók ég eiginlega bara gamlar myndir af mér. Ein þar sem ég stend úti á verönd á Lækjarfitinni og er að setja varalit á mig .. ekki bara varirnar heldur allt andlitið :). 2 aðrar myndir eru líka frá Lækjarfitinni - önnur þar sem afi heldur á mér á hvolfi úti í garði, og hin þar sem ég ... er með afar fallegt hvítt yfirvaraskegg.
2 af myndunum eru af mér og ömmu þegar ég var um 19 mánaða, í fyrsta skiptið hér í dk. Á annarri af þeim myndum er ég í gömlu bílunum í tívolíinu. Mér þykir alveg ótrúlega vænt um þá mynd, því ég á fleiri myndir frá þessum bílum bara með öðru fólki í ( Systkinum mínum, Snædísi og Mána, pabba þegar hann var lítill ... o.fl.)
Svo eru 3 myndir frá Florida, ein frá ströndinni, ein frá mg eitthvað studio-i og þriðja frá hótel"íbúðinni". Myndin frá worldinu er ein af svona 10 næstum eins myndum, þetta voru svona lítil búðarhús ( samt ekki hægt að fara inn í húsin ) og ég bað ömmu um að taka mynd af mér fyrir framan hvert einasta hús, og alltaf er ég með sama yndislega "fallega" brosið.
Seinasta myndin sem ég tók svo er af Maríu með geðveikt blá augu ... kannski ég seti bara allar þessar myndir með inn í bloggið á eftir?
Og svo held ég að ég sé bara farin að sofa .... svo ég vakni einhvern tímann í fyrramálið og nái að laga svona smá til eftir mig inni í litla herberginu sem ég er í núna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Og svo liðu jólin
20.12.2007 | 11:00
..( ég get alla vega sagt þetta eftir ca 2vikur )
Bráðum er ég búin að eiga heima í danmörku í heila 5 mánuði! Og að sjálfsögðu líður mér eins og ég hafi komið hingað í gær - annars væri ég ekki að segja frá því og skrifa svo fallegt upphrópunarmerki á eftir því. Og á þessum heilu 5 mánuðum hef ég bara ekki afrekað neitt ýkja margt. Annað en það að :
skemmta mér á götum Kaupmannahafnar,
kysst fólk á kaffihúsum ( og lestarstöðvum ),
farið á erótískt safn ( ég var næstum því búin að skrifa vaxmyndasafn ) EN í raun og veru voru samt nokkrar gínur þarna - þó þær hafi nú ekki verið úr vaxi.
Ég hef séð grilljón bíómyndir - heilar og hálfar þar sem ég var svolítið gjörn á því að verða allt í einu þreytt í miðri mynd,
saknað þess að vera í skóla
ég hef farið þó nokkrum sinnum í Tívolíið ( í sumar, Halloween og jól ),
eignast geðveikt flotta bílamottu
verslað alveg heilan helling af einhverju tilgangslausu drasli,
keypt ekki nema 5 pör af skóm - og er á leiðinni að kaupa annað reyndar,
eyðilagt hjólavagn
brotið nokkur glös ( reyndar bara 1 sem ég man eftir )
verið kúnni í IKEA
farið í nokkrar dýrabúðir
séð ógrynni af froskum
horft á íkorna ná í hnetur í næsta garði
þrifið fugla- og fiskabúr
hitt fólk af netinu
langað til útlanda ( nei ég bý EKKI í útlöndum )
saknað
hjólað, hjólað og hjólað
borðað of mikið af súkkulaði
tekið yfir 5000 myndir =O
eignast "brabra"
tekist að eiga blóm í meira en 2 mán
verið hrifin af manneskju/m
eytt helling af pening
eignast pening
farið í heimsókn
verið á hóteli ( þó ekki yfir nótt haha )
skrifað bréf
farið í keilu
átt 18 ára afmæli
keypt gjafir
talað ensku og þýsku ( þarf ég að taka fram íslensku og dönsku ?)
Verið veik
lesið eitthvað af bókum, tímaritum og myndasögum.
labbað um "alla" Kaupmannahöfn ( ekki úthverfin þó )
grátið af sársauka
orðið sjálfráða og fjárráða =D
kitlað
liðið yfir mig
hlustað á tónlist
hlegið
farið til læknis
hitt fólk af netinu
keypt mér tölvu
.... og það sem ég hef gert mest af, og það versta ...
Eytt ALLTOF miklum tíma í fjandans tölvuna !
Að sjálfsögðu er þetta ekki allt sem ég hef gert, eitthvað fleira hlýt ég bara að hafa afrekað - en ég man bara ekki allt alltaf. Eitt hefur samt líka gerst síðan ég flutti - verð alltaf lélegri og lélegri í íslenskri stafsetningu L ekki það að ég geti ekki skrifað íslenskuna lengur - nema núna þarf ég svo fáranlega oft að stoppa að skrifa og hugsa mig um hvernig sum orð eru skrifuð, hvort það séu 2 stafir eða 1 af hvorum, "n-in" og eitthvað fleira. EN þó get ég þakkað tölvu notkun minni fyrir að ég sé ekki lélegri en ég er :P ... þó ég efist um að ég gleymi allri íslenskunni ( skrifa ) einhvern daginn. Eða þó ....
Hvað hefur þú afrekað síðustu 5 mán ? ( eitthvað stórt - ekki þessa litlu atburði sem ég hef talið upp ;) )
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fita og ókurteisi ?
16.12.2007 | 19:04
Oooog nú langar mig að vita eitt.
Ég var í bænum í gær að versla jólagjafir - ef jólin væru búin gæti ég sagt frá því sem ég keypti, en þá hefði ég náttúrulega ekki skrifað "í gær". Ég þramma þarna um eins og FÍLL því ég er svo feit ( bíðiði - það er alveg ástæða fyrir þessari setningu ) og hlussast svo inn í H&M og aðrar skemmtilegar búðir. Þegar ég loksins kemst út um dyrnar, vegna fitu, á H&M ( eftir að hafa verið þar í annað sinn) labbar upp að mér maður.
Ég held ég ætli EKKI að segja hvernig þessi maður var líkamsbyggður - kemur bara í ljós. Hann babblar eitthvað við mig, ljóshærðu feitu stelpuna, á þessu óskiljanlegu tungumáli, dönsku.
Fyrst horfði ég ( feita stelpan ) á hann og sagði svo "HVAD?" ( ekki samt þetta týpíska Jón Gnarrs "HVAD?" ) og hann endurtekur sig. .. svona varð okkar samtal:
"Undskyld, men kender du til her omkring"
Ja lidt, men jeg bør ikke her i KBH
Ok, men ved hvor man købe tøj for store piger.
Hmm nej det ved jeg ikke ...
Er du helt sikker? Køber tøj?
Hvad ( ég heyrdi bara ekki hvad hann sagdi nema thessi 2 ord sem eru strikud yfir ), undskyld men jeg har desværre kun boet her i Dk i 4 måneder så er ikke så godt til dansk.
Nåhh .. hvor kommer man så fra
Jeg kommer fra Island
Så du kender dig slet ikke til her i KBH. Jeg prøver at finde en butik hvor jeg kan købe tøj til store piger.
Jamen, jeg ved ikke om nogen butik.
Ja, men jeg prøver at købe tøj for en pige som har en stor mave som DIG
( omg ég vissi EKKERT hvad ég átti ad segja =S )
Ehm, du kan sikkert finde noget her i HM.
Hvorhenne køber du tøj
.. ég sagði ekki neitt
Oh, det er så svært at finde tøj for "fede"folk som os - ( og svo snerti FOKKINGS maðurinn "magann" á mér !!!!! )
Og ég labbaði svo bara í burtu ... en nú spyr ég.
Er þetta ókurteisi eða bara "biturleiki" í mér. ég versla mér nú bara föt þar sem ég vil, enda ekki það feit að þurfa að fara lengur í sérdeild - sér búðir ( þó ég hafi þurft þess einu sinni :) )
Ég varð samt ekkert fúl á að hann sagði að ég sé feit - bara hissa. Þó ég sé feit, þá er enginn fíll ( lengur) og að mínu mati segir maður ekki svona við fólk sem maður hefur ALDREI séð, og þekkir ekki neitt til.
En ég varð samt frekar fúl þegar maðurinn snerti magann ( þó náttúrulega bara peysuna ). Hvaða andsk**** vitleysa var það ?
Ég verð samt aldrei lengur fúl þegar fólk segir við mig að ég sé feit, það gerist líka afar sjaldan að ´fólk segi það við mig :) En ég verð samt alltaf jafn hissa þegar fólk sem ég þekki ekki neitt segi þetta við mig .. mér finnst meira í lagi þegar fólk í fjölsk. og vinirnar nefna það við mann .. enda gott að vita að þeim sé annt um mig ;) ( og vilja ekki að ég deyji úr offitu )
Þetta minnti mig samt svo á "indæla" manninn sem ég því miður veit hver er, kom inn í sjoppuna sem ég var að vinna í og er að kaupa sér nammi fyrir ca. 500 kr. ( Frekar stór maður )
Svo horfði hann á mig og sagði:
"Ertu ólétt?"
" neinei, og hef nú ekki hugsað mér það næstu árin" ( var 15 ára )
" já ok, æji þú ert bara orðin svo feit- á miða við þegar ég sá þig síðast"
... aaaaah ! þarna langaði mig að fara gráta, enda fáránlega viðkvæm yfir því að vera svona feit.
"jájá, enda var ég um 11 eða 12 ára þegar þú sást mig síðast"
... og þá fór hann að babla eitthvað um að hvað hann væri miður sín að hafa sært mig ( held það hafi nú samt ekkert sést á mér hvað mér sárnaði ) það hafi ekki verið ætlunin - "þó þú hafir nú samt fitnað svona rosalega síðan síðast"
Hann " já en er ekkert erfitt að vera svona feit? "
Ég horfði bara á hann, rétti þessum frekar feita manni blandípokann fyrir 500 kr. og afgreiddi næstu manneskju.
... en samt, í þessu tilviki þekkti ég manninn .. eða vissi allavega hver hann er. Og hann kom AFTUR ´fokkings sjoppuna, afsakaði aftur að hafa sært mig - en spurði mig nú samt hvort ég ætlaði ekki að fara í megrun.
Kannski maður taki bara þetta til sín .. svona 3 árum seinna og fari í alsherjar megrun ;D
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hafiði einhvern tímann vaknað ofan á ruslatunnu? Og alveg edrú !
14.12.2007 | 12:49
Ég hef nefnilega prufað það ! ekki það að ég hafi fengið mér lúr ofan á ruslutunninni, aldeilis ekki. En ég skrifaði einu sinni um sviða í löppinni á nóttinni. Svipað og þegar maður fær sinadrátt og vaknar og á að standa beint upp, ég var sko alveg viss um að það væri betra að ljúka bara sársaukanum strax - hoppa á fætur finna smá verk og voila verkur farinn =)
En svo varð ekki ...
Ég vaknaði semsagt í nótt með þennan yndilega verk / sviða í lærvöðva á hægri löpp. Byrjaði náttúrulega að taka sængina af mér því það má EKKERT koma við eða hreyfast löppin án þess að ég grenji af sársauka ( sem gerist nú ekki oft ). Svo allt í einu datt mér það snjallræði í hug að standa upp og láta verkin fara ... ég man að ég gerði það líka einu sinni. En munurinn á atvikinu ÞÁ og í nótt var að ég var búin að liggja í alveg svona 40 mín þegar ég stóð seinast upp. Seinustu nótt var ég bara búin að liggja í um 5 mín.
Allavega .. þegar ég stóð upp varð verkurinn ekkert minni heldur varð 3falt meiri. Ég ákvað að setjast á rúmið mitt og reyna bara slaka á og þegar ég væri tilbúin að finna aftur verk að leggjast þá og bíða svo bara þar til að þetta væri búin. Þegar ég settist var mér svo yndislega óglatt þannig ég teygði mig í ruslafötuna því ég var sko alveg viss um að ég þyrfti að æla ( ég gat ekki staðið upp til að fara inn á klósett )
Eftir einhvern tíma vakna ég á gólfinu, með andlitið í "fótunum" á stólnum mínum og OFAN Á ruslatunnunni! Fyrsta sem ég hugsaði var "hvar er ég?", "afhverju er mér svona illt í maganum,hvað "stingst" inn í hann?" og svo ... "Afhverju í ands***** ligg ég á ruslatunnu!!?" Ég fattaði hvað hafði gerst þegar ég sast aftur á rúmið mitt.
Féll greinilega bara í yfirlið af sársauka þegar ég hélt ég þyrfti að æla!
Þegar ég sat á rúminu varð ég svo "hrædd/ stressuð" að ég byrjaði öll að titra. Fyrst skulfu tennurnar og svo allur líkaminn. Ég reyndi að hugsa að ég þyrfti bara að slaka á og þá myndi ég hætta. Það virkaði eftir svona 5 mín. Enginn verkur í fótnum ennþá, þannig annað hvort var ég búin að liggja það lengi EÐA sem er líklegra að það hafi alveg slakað á vöðvanum þegar það leið yfir mig. Ég stóð upp, kveikti ljós og lagðist svo upp í rúm og sofnaði ... ætli þetta hafi ekki verið einhver tími sem þetta "ferli" tók.
Þar sem ég var ekki að fá þennan sting/ sviða í fyrsta sinn ákvað ég að kíkja til læknis. Þar fékk ég að vita að ég er með skaddaðan ( skaðaðan? ) lærvöðva á hægrilöpp og þarf að fara í sjúkraþjálfun næstu mán. Fæ samt líka fleiri niðurstöður eftir einhverja daga - frá blóðprufunni.
Lena
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
"Ég elska hana"
6.12.2007 | 18:21
"Ég elska hana" - hun er min bedste ven.
Man þegar ég var lítil og ég gat ALDREI sagt "ég elska þig" við fólk, eða bara sagt að ég elski einhvern yfir höfuð. Mér þótti samt ósköp vænt um allt fólkið í kringum mig ( fjölskylduna ). Það var svo ekki fyrr en ég var 15 ára sem ákveðin manneskja nefndi það við mig að ég segi aldrei " ég elska þig" eða "ég elska þig líka" við hana. Ehm? Í raun veru fannst mér nú frekar asnlegt að segja það þannig ég sagði alltaf " og ég þig " þó ég elskaði hana ekkert, mér þótti bara vænt um hana. (að mínu mati þá).
Í gær sagði svo Snædís við mig í gær að hún elskaði vinkonu sína - hún væri sko besti vinur ( vinkona) hennar. Það var samt ekkert þá sem ég fattaði að ég gæti alveg elskað fólk án þess að vera hrifin af þeim. En það eru nú samt bara ca. 5 mánuðir síðan. Núna get ég sagt "ég elska þig" við fjölsk. og vini mína - og þurfa ekki að nefna eða hugsa - "ég er samt ekki hrifin af þér"
Ég hugsa samt enn smá hvað þetta mér finnst þetta asnalegt. Mig langar eiginlega bara að þykja vænt um fólkið í kringum mig, og elska svo bara maka / kærasta ( eða í þá áttina :P). Og svo börnin mans þegar kemur að því. En þá er maður samt komin í það að "elska" getur verið svo mismunandi ást. Það er ekki sama merking á milli þegar maður segist elska maka, börn, fjölsk. og vini. Eitthvað svo rosalega mismunandi "væntumþykja" ( haha ég man ekkert hvernig þetta orð er ( umhyggja ? ))
Er samt ekki svoldið slæmt að hafa "eytt" alveg um 15 árum í það að elska engann? Eða er kannski bara ágætt að hafa bara þótt mismunandi vænt um fólkið í kringum mann. ( en ekki elskað það ? ) Er ég kannski bara eitthvað rugluð að vera að velta mér upp úr liðnum "atburðum" og hlutum? Já, ætli það ekki bara ...
Það eru bara 18 dagar til jóla - og ég er EKKI búin að kaupa jólagjafir til að senda heim til Íslands. Bæði það að ég tími eiginlega ekki að eyða peningunum mínum í lestarkort og ég veit EKKERT hvað ég á að gefa þessu fólki sem býr þarna langtíburtkistan. En ætli maður detti ekki á eitthvað sniðugt einn daginn, en þo ekki of seint ( þó ég voni nú að ég fari ekki að detta á eitthvað - nenni svoleiðis lögu í raun og veru ekki svo mikið. )
Ég - gáfaða manneskjan Lena, tókst að líma óvart nögl á mér við puttann. Það fór semsagt lím á milli naglar og efst á fingrinum. Og ég get sko alveg viðurkennt að þetta er ekkert svaka þæginlegt núna eftir að ég þurfit að "rífa" nöglina af efst. Þetta var sko ekkert UHU límstifti, heldur eitthvað lím sem er eiginlega of gott. Eða ég bara svona rosalegur klaufi - því þetta var í annað skipti sem ég lími eitthvað saman sem á ekkert að líma ( síðast voru það 2 puttar "fastir" saman. )
Held ég fari svo til ömmu og afa 22. Des ( eða 23. ) Eða held það eiginlega ekkert- veit bara ekki hvorn daginn ég fer til þeirra. Held ég nenni svo varla að hanga þar eitthvað mikið lengur en 26 - 27. Des. Enda ekki ætlunin að eyða áramótunum þar... Man hvað mig langaði alltaf að halda jól aftur með ömmu og afa, eftir að þau fluttu til Danmerkur '98. Á svo rosalega margar góðar minningar frá jólunum heima hjá ömmu og afa þegar ég var lítil. En í raun og veru þá eru þetta náttúrulega bara barnaminningarnar, þannig gæti alveg orðið fyrir vonbrigðum þetta árið.
Ég man hvað jólatréið hjá ömmu og afa var STÓRT. En svo þegar ég skoða myndir frá seinustu jólum sem ég var með þeim ( '97 ) þá er tréið bara svona um 10 cm stærri en ég .. semsagt örugglega bara um 150 eða eitthvað :P ( ég man ekkert hvað ég var há þegar ég var 8 ára, en ekki mikið hærri en 140 cm að ég held. )
ohh, ég fékk ekkert nema æðislega afmælisgjöf áðan, en ætla samt að bíða aðeins með að blogga um það .. geri það um leið og ég er komin með myndir.Lena
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)