Danir björguðu mér nú í fyrradag !

Mikið minna mál heldur en þetta, en Danir björguðu mér nú samt í fyrradag þegar ég leið útaf í lestinni. ( sjá blogg 12. nóvember ). Þeim datt örugglega ekki til hugar að spyrja til þjóðernis og ef svo hefði verið þá stórefast ég um að þau hefðu labbað burt frekar en að hringja á sjúkrabíl eins og þeir gerðu. 

Finnst svo leiðinlegt hvað Danir eru alltaf djöflamálaðir, en sjaldan sagt góðu fréttirnar. Ég hef allavega ekki enn orðið fyrir skoti frá þeim, en jújú - einhverja vorkunn samt að vera frá Íslandi; hef fengið skilaboð og hringingar um að fólk vilji hjálpa mér peningalega séð ef ég lendi í vandræðum. Ekki slæmt það ef svo skildi koma upp á.

Er farin út að njóta dagsins meðal Dana ;D 


mbl.is Danir vildu ekki bjarga Íslendingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er enginn að segja að þeir séu allir svona. En upp til hópa þá eru þeir með svakalega minnimáttarkennd varðandi íslendinga. Ég bý í Köben svo ég hef fundið það.

Gunni (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 10:23

2 identicon

Þetta er bara bull í honum. Skv. fréttum í DK, þá strandaði hann á laugseftirmiðdegi og var lóðsað af strandstað á sunnudegi kl. 15:10. Svo var hann með skæting og læti. Var hvorki með sjókort né staðsetningartæki sem á að sigla eftir.  Sjá http://amtsavisen.dk/apps/pbcs.dll/article?AID=/20081027/RAM/720471670/1142/AMTSAVISEN

 Samkvæmt því sem ég þekki, þá á maður ekki að sigla eftir baujum hér í DK, heldur einungis nota þær til aðstoðar, en maður á að nota sjókort.

Félagi minn sem siglir mjög mikið á Limafjarðarsvæðinu segir að vegna þess hve grunnt það er á mörgum stöðum hérna, leggja hreinlega ekki allir í að aðstoða fólk sem hefur strandað, og danir gera hreinlega ráð fyrir því að fólk hafi samband við yfirvöld til að láta draga sig út. Það eru jú lóðsbátar hjá flestum höfnum. (ég bý við Limafjörðin og hef sjálf siglt um hann)

Það er margt sem hægt er að kenna kreppunni um.....en þetta finnst mér einum of langt gengið.

Námsmaður í Danmörku (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband