Banana Pönnukökur

Ég ætla að láta verða að því – og blogga !

( *hneigi mig*  fyrir öllum þeim sem klöppuðu)

og í þetta sinn ætla ég EKKI að vera búin að skrifa alveg heilan helling, hugsa svo “nei þetta er ekki nógu fínt” og stroka allt. ÞAÐ hef ég nefnilega gert seinustu 4 skiptin sem ég hef reynt að blogga eitthvað.

En það er samt ekki eins og ég sé að valda ykkur vonbrigðum, hef nú alveg heyrt í ykkur flestum sem lesa bloggið mitt. Þannig ættuð að vita hvað hefur gerst og svona. Þó það hafi nú ekki mikið gerst.

Eða ? Jújú, fórum “útum allt” seinustu helgi. 3x á strikið og 2x í Tívoli =O ( þá er ég ekki að tala um að ég hafi bara farið út úr Tívolíinu og fengið mér að borða, og svo aftur inn )

Afrekaði það líka á sunnudaginn að sofa MIKIÐ. Svaf frá 2 – 12, sofnaði svo aftur um 1 að degi, og svaf til 5, og tókst svo að sofna um 11 um kvöldið – og sofa til 6/7 á mánudagsmorgninum.

Og til að láta ykkur vorkenna mér ...

... mér finnst það ætti að vera bannað með lögum að æla á almannafæri. Hvernig dettur fólki í hug að gera öðru fólki að æla svona um allt. Fyrst á föstudaginn sá ég einhvern æla “langt í burtu” samt, þannig var ekkert að kippa mér eitthvað upp við það. En svo þegar við vorum í lestinni á leiðinni heim um kvöldið þá var ég og Ívan eitthvað að tala um Hard Rock café – eða hann var að segja mér frá einhverju. Og svo allt í einu lít ég eitthvað til hliðar, og byrjaði bara að kúgast og varð að biðja Ívan um að segja mér seinna frá þessu. Því ég bara var að fara úr þessum lestarklefa því að maðurinn á “móti” ældi á fötin sín ( hann REYNDI samt að æla í poka )

Mér er sko alveg drullusama hversu drukkið fólk er, ég vorkenni því sko ekki neitt þegar það þarf að æla – en EKKI æla fyrir framan mig, nema þið viljið að ég æli á ykkur !!!!!!!!!!!

Hélt ég ætlaði aldrei að hætta að kúgast ..... greyjið ég !

EEEEEn þetta var ekkert búið sko, því að þegar ég kom til Köben daginn eftir þá hafði einhver ælt á “götuna” þar sem maður þurfti að labba til að komast í lyftuna, eins gott að ég var ekki ein,því ég hefði virkilega hugsað til þess að taka bara lestina á næstu stöð – til að sleppa við að fara í lyftuna.

Og af öllu þessu ælu dóti þá þurfti mig náttúrulega að dreyma að ég hafi ælt út um ALLT í einhverju herbergi – og vaknaði svo á sunnudagsmorgninum að drepast úr ógleði – allt þessu fólki að kenna sem gerði mér það að æla bara útum allt í Köben !

Hvernig ætli banana pönnukökur smakkist? Stundum þegar ég elda hafragraut á dagin þá stappa ég banana með, semsagt borða þá hafragraut með banana, mjólk og kanilsykri ( ekki einu sinni spyrja “og er það gott?” – ég væri ekki að borða þetta ef þetta væri vont )

OG núna er ég að hlusta á lag sem heitir “Banana Pancakes”. Mig langar svolítið til að smakka svona, hvernig ætli maður baki þetta?

Ætli þetta séu kannski bara pönnukökur með bönunum á, eða bananar í pönnukökudeginu ??

Hmm eitthvað fleira?

Já, ég fékk GEÐVEIKT flotta mottu í herbergið mitt í gær ( ásamt reyndar öðru dóteríi ). Snædís og Máni fengu svona bílamottu inn í herbergi sitt um daginn, man ekkert hvernig ég orðaði það, en einhvern vegin að “hvort þetta væri ekki handa mér” svo töluðum við um að hafa þetta inni í stofu þegar það kæmu gestir :P

Svo í gær, þegar þau fóru í IKEA keyptu þau þessa stórfína mottu handa mér =D ótrúlegt en satt þá er ég alveg þannig manneskja að ég myndi alveg hafa svona undir stofuborðinu mínu bara uppá húmorinn – og til að sjá hvernig annað fólk myndi “bregðast við” =P

 Held eg fari í það að blogga alla vega einu sinni í viku héðan af ...

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svona er að fara í burtu... þessir Danir gubba bara á þig! En þar sem að þér finnst svo gaman að sjá viðbrögð hjá fólki... næst þegar einhver gerir þetta prófaðu þá að springa úr hlátri í svona 23 sek... svo taka 6 sek þar sem þú stendur þarna með hræðslusvip og fara svo að gráta í 39 sek... og svo aftur springa úr hlátri og benda! Bloggaðu svo um niðurstöðuna!

Júlíana (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 17:54

2 Smámynd: Lena Ósk

Júlíana ég er sko búin að æfa mig alveg heilan helling núna, ekkert mál með þessar 23 sek, og 6 sek, eeen svo þessar 39 sek eru ekki alveg að gera sig... næ bara upp í 33 :(

Er sko alveg miður mín útaf þessu ... helduru að þú getir fyrirgefið mér - og látið bara 33 sek nægja? ... þú veist, mér er farið að hlakka svo til að benda ( og blogga um niðurstöðuna)

Lena Ósk, 21.10.2007 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband