Ef ég væri fræg ...

 

Ef ég væri fræg ...

 

Væru fréttir seinasta mánuðs svona;

 

Lena sást ferðast um í bíl ásamt manni frá austur evrópu - ætli þetta sé nýji gæinn í hennar lífi? Þess má líka nefna að hún var EKKI í bílbelti.

 

Lena kyssti góða vinkonu sína á skemmtistað í mið Hilleröd, ætli hún sé samkynhneigð? Hvenær ætli hún komi útúr skápnum?

 

Lena fór í frí til fjölsk. Sinnar til Íslands á fimmtudaginn var. Hún gerði sér ferð til Krýsuvíkur og Þingvalla og var yfir sig hrifin af landi sínu.

 

Lena var mætt 4 tímum fyrir flug upp á Kastrup og eyddi heilum tíma í að endurpakka í ferðatöskuna á sína á meðan arabi labbaði margoft fyrir aftan hana. Fyrirhugað misheppnað morð þar sem allur varinn var á hjá starfsfólki flugstöðvarbyggingunnar.

 

Lena hitti lækninn sinn að hádegi miðvikudagsinn 19. mars og fékk þar að vita að hún væri með bólgu milli beins og beinhimnu. Nokkra mánaða sjúkraþjálfun og bólgueyðandi gigtarlyf ættu samt að koma henni á réttan kjöl innan skamms tíma.

 

Ætli Lena sé í fýlu út í góð vinkonu sína til margra ára, því hún hefur ekkert látið í sér heyra síðan hún kom til hins ísilags lands.

 

Ætli hún sé með eitthvað í maganum? Lena hélt sig heldur lengi inn á baðherbergi þann 21.mars - kom svo síðar í ljós að hún fór í hljóðláta sturtu.

 

Ooooog þar fram eftir götunum. Ég er bara ekki frá því að ég vorkenni greyjið fræga fólkinu - það fær bara ekki að gera neinn skapaðan hlut án þess að heimurinn fái að vita af því !

 

 

mbl.is Nágrannar Amy Winehouse pirraðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danska Krónan :(

ég neita bara að trúa þessu .. ef maður fer ekki bara að flytja heim í sumar ef krónan hættir ekki að falla.

Við erum að tala um að danska krónan sé í 15.8 dkk :( 

 

Annars ætlaði ég bara að skrifa að ég á ekki von á að blogga eitthvað fyrr en ég kem "heim" til Danmerkur aftur :)  


Söknuður

Nú man ég hvernig mér leið þegar ég var að fara flytja til Danmerkur, hvað ég hlakkaði til en var samt svo kvíðin og stressuð að það hálf það væri hellingur. Og ég var strax farin að sakna allra ... áður en ég lagði af stað. Mér líður nefnilega alveg eins núna – sem er náttúrulega bara asnalegt því ég er bara að fara í nokkrar daga heim!

Hitti Petru og Amir á þriðjudaginn, þurfti svo að flýtja mér að ná strætó og hún lestinni þannig það var svona fljót ”kveðja” hent á hvort aðra og svo ”have a nice trip to Iceland / Ireland” ( hún fer þangað eftir viku ). Og svo bara ”BÆ” til þeirra beggja. Í strætó á leiðinni heim leið mér fáranlega skrítið, einhver tilfinning sem ég hef bara aldrei upplifað áður en reyndi eftir minni bestu getu að blokka hana því þetta var svo óþægilegt.  Hélt svo bara áfram að hlusta á tónlist úr Ipod-inum og hreyfði varirnar með. Svo þurfti endilega að koma lagið ”big girls don’t cry ” með Fergie ooooog vá hvað þessi óþægilega tilfinning kom einum of hratt yfir í annað sinn. Ég gat samt engan veginn tengt hana við lagið í fyrstu.

ALLT í einu fattaði ég að ég hlustaði alltaf á þetta lag í fyrra, bílnum hennar Júlíönu, kvöldin í sumarbúðunum, fyrir útskrift, á dagsbirtu nóttum ... og þá fattaði ég það lagið minnti mig bara einum of mikið á sumarið síðan í fyrra heima á Íslandi sem ég sakna ekkert lítið.  

Eins gott að ég fái að rifja upp minningar með ykkur þarna skrípin ykkar heima á Íslandi þegar ég loksins kem!

Við heyrumst ! =)  


Sæðinu hvað?

Jááá ... ekki í fyrsta sinn sem MBL gerir skemmtilegar villur í fréttum sínum. Ég er allavega ekki að skilja hvaðan sæðið kom inn í þessa frétt?

En annars gangi Marcos bara vel leitinni á (í ?) sæðinu - svo stórt greinilega þar sem það þurfti nokkra kafara í þá leit.

 

bætt inn seinna :  

þið sem skiljið ekki upp né niður í því sem ég er að tala um, þá er búið að breyta þessu. :) 

 


mbl.is Lögfræðingur leitar Madeleine á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helgin !

Helgin

Var svona nokkurn vegin búin að ákveða svolítið síðan að ég færi út um helgina – stelpukvöld. Ég, Petra, Quynh, Sonita, Mona og kannski Titta og nýja stelpan frá Mexico. Eitthvað breyttist það þó og á föstudaginn sagði ég við Petru að ég ætlaði bara að vera heima. Spara smá pening og sleppa því að drekka ... ( ég get það nú alveg .. eeen viljinn er ekki fyrir hendi ). OG kabúumm allt í einu komst ENGIN af þessum stelpum sem við ætluðum með þannig það var bara hætt við allt =)

Um 6 hrindi Petra .. haha =D alveg dýrka ég þegar hún tekur upp á að tala bara spænsku við mig, eeen ég skildi samt aðal atriðin sem voru. Li Ping ( ping pong ;D) Jamal, nýja kærastan hans og hún – GD í kvöld. Ohhh mig langaði svoooo að sjá nýju hans Jamal ( afhverju skrifa ég nýju – hann hefur aldrei áður verið með stelpu!) þannig það var bara ”oh ok, ætla ég komi ekki  líka”. Og Voilá – ég og Petra hittumst klukkan 10 á Hillerød st.

Löbbuðum eitthvað um Hilleröd því Jamal og Sushi ( hans ”nýjA” ætluðu ekki að koma fyrr en klukkan hálf ). Eitthvað um 10 yfir 10 hringdi Jamal og sagði að það hafi einhver yndislegur fullur gaur hrint Sushi á vegg :S þannig þau kæmu aðeins of seint. Við alveg í sjokki .. hann var nefnilega ekkert að segja neitt frekar frá þessu. Gerðum svo bara þetta vanalega – í Kioskið og kaupa tropical juice ( svolítið eins og tríó trópí ) og smirnoff milli! Og sátum svo bara hjá lestarteinunum og biðum eftir þeim.

Korter í 11 kom þetta yndislega fallega fólk! Hahaha ... ég var ekki viss hvort ég ætti að hlæja eða gráta þegar ég spurði hans nýju hve gömul hún væri. Tuttugu og fjögra takk fyrir – eeeeeen  hún lítur út fyrir að vera 35 greyjið =S Alla vega ekki jafn gömul Petru minni !

Kannski bara því hún var svolítið bólgin í framan .. eftir að gaurinn hrinti henni á vegginn hugsaði ég fyrst ... en ég komst seinna að því að svo var ekki. Nú er ég ekki beint þekkt fyrir að tala illa um fólk ( eða leiðinlega um það ) EN verð samt að segja að þessi stelpa var svo afbrýðissöm þegar Jamal var að tala við okkur að það sauð úr hausnum á henni, á milli þess sem hún brosti þessu ”fallega” fake bros ( fake bros eru aldrei falleg !)

Anyway! Fórum til HongKONG! Haha =D og hittum þar Li Ping sem var með 2 öðrum stelpum. Og hvað er málið með það það var eiginlega bara leiðinlegt nýtt fólk sem við hittum þetta kvöldið? Það var allavega voða lítið varið í þessa stelpur.

Fórum svo öll inn á GD eftir að ég þurfti í 100x að segja manninum HVAR á kortinu mínu kennitalan mín væri, og svo vildi einn dyravörður endilega gefa mér armband aaaalveg þangað til hann var minntur á að ég væri fædd ni og firs, en ekki seks og firs. Pff ... EN þar með hefur hann fattað að ég komst upp síðast án ”leyfis” þar sem þetta var sami gaurinn og þurfti því miður að henda mér út af þessum ágæta stað =s

En allt í lagi svosem .. neðri hæðin er ekkert síðri og svo kemst maður alltaf upp seinna um kvöldið með smá brosi ;) Klukkan var samt ekki einu sinni orðin 11 þegar ég hélt ENGU niðri lengur.( fyrsta sinn síðan ég byrjaði að drekka :])  Sat örugglega inni á klósetti ælandi STANSLAUST í svona 30 mín.... og þar sem yndis Petra bjargar mér ALLTAF fékk ég ekki að drekka meir það kvöldið .. eða það hélt hún.

Það var keypt Tequila á línuna – nema mér ... þar sem mér finnst það bara VIÐBJÓÐUR en sæti barþjónninn laumaði Ga-Jol til mín þar sem hann veit að ég drekk það ! :D oooog þar fór áætlun Petru. Og eina sem ég heyrði hana segja næstu tíma var ”LENA SODA!”  þó ég hélt alltaf áfram efitr að ég komst upp á efri hæðina að drekka vodka og cult( sem ég fæ pottó ógeð af )

Svo var kvöldið bara búið ( klukkan 4 ), því þá lokar fríbarinn. Þannig ég sat bara á spjallinu við eina stelpuna af barnum, oooog vá hvað ég var heilluð af brosinu hennar! Haha =D ekkert smá fallegt. Eitthvað um rétt fyrir fimm var bara ég og Petra eftir – ásamt her af strákum þannig að sjálfsögðu fer ég að spyrja hvar allir úr  ”okkar” hóp eru ..þá höfðu þau bara farið eitthvað um 3, og ekkert vrið að hafa fyrir því að kveðja og svona.

Við tíuðum okkur út um klukkan 5, en ég átti samt að fara og biðja um vatn fyrst á barnum. Og lucky me, fann ég ekki tíkall í brjósthaldaranum ( ehm .. veit nú ekki alveg afhverju ég ”fann” hann bara allt í einu ) og keypti því 2 skot af GaJoli =S ... ég var DREPIN af Petru þá .... :S hún drakk samt eitt af þeim, BARA svo ég myndi ekki deyja þarna inni.  ( ég fékk að vita það daginn eftir – ekki að ég muni eftir því )

Fórum svo á einhvern pizzustað. Man samt ekkert eftir því og get því ekki sagt að ég muni eftir að hafa fengið mér eitthvað að borða. En ef ég man re´tt eftir því sem Petra sagði þá var Amir og einhverjir fleiri þarna með okkur. Hittum vini amirs ( eeehm jájá .. það veit svosem enginn hver Amir er :P ) á stationinu. Oooog what to say ... ekkert afar spennandi hlutir sem gerðust þar en henni Petru tókst samt að eyðileggja sumt og ég var ekkert afar sátt við hana þá, en grínaðist bara með það =)

Af einhverjum ástæðum var ég komin í lestina á leið til Allerød – ég sem var viss um það að ég væri á leiðinni heim til mín! --- ekki til Alleröd.  En það þýddi víst ekkert að hætta við þarna þannig ég fylgdi bara með. Þegar við vorum komin á st. Í Alleröd fóru allir eitthvað annað nema ég, Petra, Amir og bróðir hans, greinilega var ætlunin að fara bara heim til Amirs þar sem við höfðum farið þangað áður og svona. En við settumst ( sátumst?) inn á waiting room þarna á stöðinni og eitthvað fór mér að leiðast þannig átti í hörkusamræðum um kynlíf við bróður Amirs .. skemmtilegt það. Og af einhverjum ástæðum talaði ég BARA ensku ( þó ég sé alveg aaaal talandi á dönsku! )

Oooooog svo bara gerðist EKKERT ! og við fórum 1 tíma seinna ( hahah verð nú samt að taka fram að þessi 1 tími var algjörlega tímaeyðsla í mér .. fyrir Petru og Amir ;) ) heim til foreldra Amirs. Greyjið þau að allir strákarnir komnir heim ( 4 bræðurnir, en bara 2 búa þarna ) og svo plús ég og Petra. Fórum inn í eitthvað herbergi OG hvern  sé ég þar! :O  Bróðir amirs sem ég var að tala við STEINSOFANDI í rúminu – sem ég átti að sofa í! Hahaha En já ... veitekki alveg hvernig hann fór að því að sofna svona fljótt þar sem ég sá hann svona 15 mín áður. Amir reyndi að vekja hann svo hann gæti drullast fram og sofið í sófanum svo við 3 gætum sofið þar inni. EN það gekk ekki að vekja hann þannig eldsti bróðir kom og vakti hann. Og við gátum farið að sofa! :D ( klukkan var svona ca. 8 )

Ég vaknaði svo klukkan 20 yfir 9 .. aaaalveg að pissa í mig en ætlaði engan veginn að þora fram en manaði mig upp í það svona 20 mín seinna. Og sem betur fer rakst ég EKKI á foreldra þeirra bræðra eins og um morguninn. Reyndi eins og ég gat að sofna aftur .. sem tókst um 11 og svaf þá í ca 40 mín.

Osman  - eða ekki .. kann bara ekki að skrifa nafnið hans ( bláeygði Tyrkinn ;) ) kom svo og sótti okkur um 1 og keyrði okkur út á stöð svo við kæmumst heim. Við ”looked like shit”  en ákváðum samt að skoða aðeins um og fá okkur eitthvað að borða í Hilleröd. Og engin smá þjónusta sem við fengum á þessum kebab stað ;D haha ...

Kom mér svo upp í strætó eitthvað um hálf 4 og var komin heim um 50 mín seinna og þá LOKSINS komst ég í sturtu. Dundaði mér svo bara við eitthvað til klukkan 8 þar sem var horft á Magi i luften sem er bara fyndinn söng þáttur með Robert Hansen ( sem er náttúrulega bara cool náungi frá Anja og Viktor ) og stuttu seinna var ég komin upp í rúm enda DAUÐþreytt.

 

Það var slappað af í ALLAN gærdag, enda lítið sem ég gat gert vegna þess að ég var að drepast úr Harðsperrum! :S En finnst ég samt vera orðin aðeins betri í dag, og á allavega ekki erfitt með að koma mér á fætur .. held ég.

Ætla allavega að skella mér á fætur og byrja daginn þar sem klukkan er rúmlega 7!=)

Eigið góðan dag og ekki missa ykkur úr spenningi því það eru bara nokkrir dagar til í að ég komi heim !

Lena sólarhringspartydýr! =O


2 ára og maskari !

Það er ekki hægt að segja annað en að börnin læra sko klárlega allt sem við ”fullorðnu” gerum. Sem mjög gott dæmi má nefna það sem gerðist í morgun. Sat í sófanum og var eitthvað að fíflast með Eið og svo allt í einu hleypur hann í ”burtu” inná klósett. Yfirleitt hefur það nú bara virkað fyrir okkur að loka hurðinni þar, eeeen núna nær hann upp þegar hann stendur á tám – sem er frekar slæmt mál stundum. Allavega ég fer á eftir honum og sé að hann sé að ná í hárbursta. Jújú ég hef alveg leyft Snædísi að greiða hárið á mér stundum og ákvað því bara að leyfa honum að prufa líka. Settumst í sófann og eftir  2 til 3 ”strokur” með burstann í hárinu fór hann aftur inn á bað, var nokkuð viss um að hann ætlaði bara að skila burstanum og kæmi svo aftur – sem hann gerði! En í þetta sinn hélt hann á plokkara og hann hefur greinilega ekki séð hvernig maður notar það fyrirbæri ( Sem betur fer .. ) og byrjaði að pota því í hárið á mér. Eftir að ég bað hann um í 3ja sinn að ”hætta” því svona gerir maður ekki ( og áður en hann meiddi mig eða sig ) þá fór hann inn á bað og skilaði honum.

Hann kom ekki tómhentur út í þetta skipti heldur með greiðu – og ég leyfði honum að renna henni í gegnum hárið á mér ... áður en ég sagði honum að skila henni. Hann kom ekki strax út aftur og ég fór því að tékka á honum.

Hélt hann ekki á þessum fína maskara mínum – með það alveg á hreinu hvernig átti að nota hann.

 

Picture 579sést ekkert rosa vel - en hann náði samt þarna öðru auganum - uppi og niðri ... eitthvað hefur samt borist út á kinn líka  .. enda skiljanlegt að 2 ára barn hafi ekki alveg tök á þessu svonaí byrjun ;)

Picture 583

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég gat bara alls ekki skammað hann og reyndi að hlæja ekki heldur benda honum bara á að þetta væri ekki fyrir hann.  Ég ætla að vona að ég þurfi nú ekki að taka það fram að þetta var þrifið eftir að ég tók myndirnar ;) 

 

annars nenni ég ekki að skrifa meira =O ( ég veit það kemur á óvart ! )

 


Svampur Sveinsson í Kína !


MBL les hugsanir =O


Eða ekki ...

Alveg fannst mér með ólíkindum að MBL skuli ekki hafa komið með frétt um sprenginguna sem var í Köben í gærmorgun, ég var nú alveg á því að MBL hefði lesið hugsanir mínar sem voru einhvern veginn á þessa leið

"Já neinei, nú mega þessir Íslendingar alveg hætta að setja inn þessar frekar ó-geðslegu fréttir hérna frá Danmörku. Morð, einhver stúlka lokuð inn í kofa, sprengingar, mótmæli ... svona áður en foreldrar mínir krefjast þess að ég komi mér heim til Íslands - þar sem aldrei gerist neitt ( sem er náttúrulega ekki satt ) !"

En neinei, svo gott var það ekki. Nú þarf ég bara að krossa putta um að foreldrar mínir hafi ekki séð þetta ;) ekki það að þau hafi eitthvða "leyfi" til að segja mér til núna - þó mamma mín vilji meina annað =P ( en þar sem ég ósköp góð manneskja þá eru þetta nú foreldrar mínir, og ég virði og íhuga vel það sem þeim finnst )

En þessi frétt þótti nú samt ekki það merkileg að hafa hana lengi á forsíðunni - hún var allavega ekki lengur þar um klukkan 5 í gærdag, en samt var ennþá fréttin um risa stóra frímerkið ( úúú já ! hverjum þykir ekki merkilegt að lesa þá frétt í 8unda sinn- ég ræð mér ekki af spenningi )


hálka já ?

Úff .. engin hálka hér hjá mér, en samt tekst mér ad fljúga á hausinn. !


mbl.is Reykjanesbraut lokuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stelpuhelgi

ákvad ad skella mér heim til Petru thessa helgi og eyda helginni thar. Ætlum til Hillerød i kvøld - erum einmitt i thvi ad gera okkur til nuna ( thad er ad segja .. eg i tølvunni og hun i sturtu =P )

Bøkudum gedveikt goda pizzu adan, mmmm ... nádum samt ekki ad klara hana - munum ad øllum likindum klara hana svona rett adur en vid førum utur dyrunum eda svo ...

svo verdur dansad pitsuna af ser i nott - asamt thvi ad drekk øgn af áfengi ( Sssshhh ... seinasta helgin thennan manud allavega ! )

Fyrsti stræto fer svo heim kl 7:50 puha ... gaman thad. En vid ættum nu ekki ad lata okkur leidast svo mikid thar sem vid høfum felagsskapinn af hvort ødru. Ef mig minnir rett tha verdum vid komnar heim um half 9. ... geri rad fyrir ad thad verdi farid beint ad sofa..

Annad kvøld fer svo i video ! eda dvd :P skemmtilegt thad.

 En ja .. leidist ad skrifa a svona utlenskt lyklabord

Goda helgi

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband