ég vissi það ..

... enda ákvað ég í seinustu vatnsdrykkjukeppni að taka ekki þátt aftur, eftir að ég lá í rúminu í sólarhring að DREPAST í hausnum og gat ekki talað ... og það í busaferðinni minni!

 Svo ég gleymi ekki að minnast á yfirliðið strax eftir allt vatnið. 


mbl.is Tveir milljarðar króna í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin breytta ég!

Vika 6 í breyttu mér, og því kannski alveg hægt að viðurkenna hlutina, svona þar sem ég er greinilega að geta þetta. Síðasta vika var líka algjör toppur. Ekki bara það að ég léttist um 2,3 kg frá fimmtudegi – til fimmtudags, og þar með komin með -6,5kg á 5 vikum, heldur náði ég líka því stóra markmiði að vera allt í allt búin að léttast um 50kg! Ekki slæmt það skal ég segja ykkur! J

Þessu hef ég náð með því að borða MIKIÐ og drekka endalaust af vatni, það er að segja seinustu 6,5 kílóin ( hitt verður ekki tekið með í þessari lotu ). Ég hef verið þvílíkt dugleg – en mætti samt standa mig betur – að mæta í ræktina, og taka vel á þar. Hef verið að gæla við það að fara í ræktina í hverri viku upp í á hverjum degi í nokkra mánuði, en það var engan vegin að gera sig fyrir mig. Og ekki bötnuðu hlutirnir við að þó ég mætti í ræktina þá fór talan á vigtinni í vitlausa átt! ... það gerði nammið!

En ég hef sagt bless við sykur ( og þar með nammi ). Eins og ég segi, komnar 5,5 vika núna og gengur stóóórvel. Þýðir samt ekki að mig langi ekkert í nammi, en þörfin er samt ekkert mikil, reyni að láta mér nægja að borða ávexti, eða ef ég er að deyja þá kaupi ég mér diet gos, sem ég má drekka ½ af á dag!

En já, ég byrjaði LOKSINS á danska, sem er greinilega að henta mér svona súpervel. Ég hafði reyndar fyrir því að undirbúa mig undir þann dag í nánast 1,5 mánuð áður en ég byrjaði. Hreinsaði þar með hug minn og byrjaði ný og endurnærð .. jah, eða svona næstum, en ég var allavega tilbúin í þetta í þetta sinn!

Þegar ég loksins tók matarræðið í gegn, þá nenni ég að mæta í ræktina, því mig langar ( örugglega eins og flestum ) að sjá töluna fara jafnt og þétt niður – sem hún er að gera.  Ég mæti semsagt í ræktina núna minnst 4x í viku, en leyfi mér samt alltaf að fá einn frídag í viku – oftast laugardagar, þar sem þeir einkennast oftast ef ekki alltaf af vinnu að morgni– og svo einhverju öðru seinni part dags.  

Og nú hef ég ákveðið að taka hlaupaprógrammið upp á ný! Ef veður leyfir þá byrja ég á morgun, ef ekki – þá um leið og veðrið leyfir. 3x í viku .. og voilá, ætti að geta skokkað eitthvað aaaaðeins meira um áramótin þegar ég kem heim til Íslands! Núna veit ég líka að þolið mitt hefur stóraukist síðan ég byrjaði að stunda ræktina eitthvað af viti, og því ætla ég að taka hlaupið með trompi!

Þó ég geti næstum tekið allan heiðurinn til mín sjálf, þá á kærastinn smááá þakkir inni hjá mér. Allt á góðan máta samt sem áður. Þó allra mest bara á hans útliti, mér fannst ég ekki alveg passa við hliðina honum og hans vöðvum, þannig varð að gera eitthvað í mínum málum. Hann gaf mér svo líka prógram í ræktina, og passar sig líka á innkaupum – eða þeim matvörum sem hann kaupir og kemur með heim. ... fyrir utan eitt skiptið þar sem ég eyddi 3dögum í að horfa á hann borða súkkulaði L Fékk svo að vita að hann hefði verið hálf hissa að ég væri ekki búin að fara í súkkulaðið inn í ísskáp .. eeen þetta gat ég! :D

Annars er lítið að frétta héðan. Ég er að vinna í verkefni um meðgöngu og ”nakkefoldsskanninger” ( veit hvað það er á Íslandi, en legg ekki í að skrifa nafnið ) og þar með blandast Down syndrom inn í. Er ótrúlega ánægð með valið á verkefninu og so far, gengur vel. Ekki nema 3 vikur í lokaskil og við sem vinnum í mínu verkefni eru komnar langleiðina .. og allt skýrist betur og betur með hverjum degi. Ég get allavega ekki kvartað yfir skólanum.

Vinnan hefur heldur ekkert breyst, ekki hægt að kvarta yfir henni heldur. Annað en mér fannst stórfurðulegt þegar bossinn hringdi í mig til að spyrja mig hverni g ég hefði það ... óvænt! Beið bara eftir að hún spurði hvort ég væri ekki til í að taka þessa og þessa vagt .. en ekekrt svoleiðis. Hún vildi bara vera viss um að fólkið sem væri í vinnu hjá henni hefði það gott – í og ekki í vinnunni.

Og þar með held ég að allt nýtt sé komið niður á bloggið í þetta sinn!


Bliver det bedre?

Þar sem ég og Julie komumst að væmnu hliðinni minni í felum ætla ég að halda mig á ”Væmnu” hliðinni í þessu bloggi. Eða kannski ekki væmnu, en ætla að vera himinlifandi glöð með ALLT, enda varla annað hægt :)

 Júlíana er búin að vera hérna í DK í nokkra daga, fór svo til vinkonu sinnar á Jótlandi á miðvikudaginn og verður þar í nokkrar vikur þar til við hittumst aftur í byrjun ágúst þegar ég fer að öllum líkindum í heimsókn til þeirra.( Og svo aftur þegar hún fer heim til Íslands með mömmu minni í mið ágúst ) 

Ég og Julie gerðum svosem ekkert brjál mikið ( ef eitthvað yfir höfuð :P ) en það var samt gaman. Fórum reyndar eina ferð til Malmö til að versla, og ég eyddi hellings af pening í mismunandi spennandi hluti/föt. Hahaha. En gerði allavega mjög góð kaup í möst say og er því bara nokkuð sátt.

Svo kemur mamma í heimsókn til mín í ágúst og verður í nokkra daga. Get varla beðið því við erum búnar að plana helling, og svo er ég náttúrulega ekki búin að sjá hana í 16 mánuði. ( mars 2008 )! Þar sem ég er að koma heim um jólin ( bara í heimsókn ) þá ákváðum við að hún myndi frekar koma í heimsókn til mín í smá frí frekar að en ég komi heim, ég lofa svo að stoppa í 2-3 vikur í desember –janúar.

Þar sem ég hef ekki bloggað í ár og aldir þá hef ég í raun alveg helling að segja.  Helsta er samt að kærastinn æltar að flytja hingað inn í ágúst ( og ég ekki einu sinni búin að nefna við báða foreldra að ég sé með strák! ). Erum löngu búin að sækja um íbúð / annað hús á einskonar stúdentagörðum en ekkert gengur. Enn sem komið er, erum við nr. 500 á listanum og eitthvað finnst mér það ganga hægt. Vorum í upphafi númer 670, en það eru næstum komnir 2mán. Við höldum samt í vonina um að fá sem fyrst þar sem herbergið sem ég er í núna er frekar smátt fyrir okkur bæði ( eitthvað sem ekki er hægt að breyta með góðri megrun, þó plássið yrði kannski ögn meira þá ;) ). Á meðan við búum hér sparar hvert okkar um 25000 ísl. Kr ( miða við gengi, veit að það á ekki að reikna það svoleiðis en get ekki gert að því )! Og því get ég varla kvartað.

Hin íbúðin er 2 herbergja, með okkar eigið eldhús ( jebb, engin svoleiðis lúxus hér ) og við verðum að borga það sama sem við erum að borga núna ( semsagt þegar hann er í sínu, og ég í mínu – þannig komum út á það sama að búa saman, peningalega séð ). Ekki skemmir svo fyrir að það hús sem við sóttum um er nær bænum og fallegra umhverfi, þó að mér finnist alveg gordjöss þar sem ég bý núna.

Þegar hann flytur inn er AKKURAT ár síðan ég flutti inn þar sem ég bý núna. Alveg er ég ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið að prufa að búa ein .. og það svona ”lengi”. Fannst það æði, þó það hafi komið tímar þar sem ég nennti ekki og vildi smá breytingu. ( OG + þegar allt fór í háaloft heima og leigan fyrir HERBERGIÐ fór ú 30þús upp í 50þús, og ég ekki einu sinni inní köben! ).

Á þessu ári hef ég líka fengið FULLT af fólki hingað heim til að gista. Vini, vandamenn og Couchsurfers. Ég hef hýst stráka frá USA, Frakklandi, Víetnam, Mexíkó, Finnlandi og 3 frá Þýskalandi og svo 2 stelpur frá Svíþjóð og Ástralíu. ( hm, var viss um að stelpurnar væru fleiri, en svo er ekki ). Ekkki get ég svo gleymt öllu því fólki sem hefur hýst mig, þannig greiði fyrir greiða. Ég tek mér svo pásu frá því að hýsa fólk núna í ágúst, en það kemur einn strákur frá Frakklandi og verður í nokkra daga í lok Júlí. Hann er samt ekki bara CS’er, heldur strákur sem ég hef þekkt í nokkkur ár.

Fleiri fréttir.

Kláraði skólann minn fyrir 2 vikum með því að ná elsku munnlega prófinu mínu. Hef sjaldan verið jafn stressuð en á sama tíma OF róleg yfir einu prófi. Ekki bara að ég þurfti að gefa 10 mín fyrirlestur um eitthvað efni sem ég mátti velja sjálf ( innan skynsamlegra marka, eins gott að velja vel ) þá þurfti ég að svara spurningum frá 2 kennurum út frá efninu sem ég hafði valið + bara það sem þær duttu í hug að spyrja um, það er að segja þær máttu spyrja um hvað sem er sem ég hef lært ( átti allavega að læra ) síðan ég byrjaði í skólanum í ágúst. Þessum spurningum svaraði ég svo í 20 mín og fékk svo að vita 10 mín seinna að ég hafi náð, og hvað ég hefði mátt gera betur. Held það hafi samt hjálpað að ég gat sagt hvað ég gerði vitlaust .. ef það mátti :P Hlakka ekkert lítið til að byrja aftur í skólanum í enda ágúst, enda ekki séð nema ca. 8 stelpur af þeim 30 sem eru með mér í bekk síðan í apríl, og þó ég sé ekkert of náin þeim þá er ég barasta farin að sakna þeirra smá.

Og svo er það nýja vinnan.  Hún er hreint út sagt æði! Er að vinna á deild á einskonar elliheimili, nema það að mín deild er endurhæfingadeild sem passar náttúrulega algjörlega við námið mitt. ( miða við að ég var á endurhæfingadeild í starfsnáminu mínu ). Var í INTRO í seinustu viku og er komin inn í allt svona sæmilega, starfsfólkið er silfur og heimilisfólkið er gull. Alltaf jafn æðislega að sjá hversu mikið fólki fer fram og þakklætið sem ég fæ fyrir alla litlu hlutina. Ég sem hef ALLTAF verið á því að vilja vinna með börn hef meira að segja pælt meira í þvi hvort ég vilji það enn .. Ég á þó eftir að prufa að vinna á barnadeild / fæðingardeildinni þannig þetta kemur allt í ljós. Minn draumur er náttúrulega að fara í kandídatinn og svo ljósmóðurina ( eða öfugt ). Þannig börnin halda enn frekar fast í mig.

Þakklætið frá fólkinu / sjúklingum hefur líka minnt mig á ótrúlega margt. ÉG hef lært HELLING á þeim 10 vikum sem ég var í starfsnámi + þessa viku sem ég er búin að vera í, í nýju vinnunni. Gleymi því ekki þegar ég sá í seinustu vikunni af starfsnáminu þegar einn sjúklingurinn labbaði 35 metra ( með göngugrind samt ). Táraðist næstum og var ekki lítið ánægð fyrir hann þaðs em eftir var að deginum ( eða bara það sem eftir var ) þar sem ég þurfti að hjálpa honum með ALLT  7 vikum áður, vegna þess hann var lamaður í hægri hlið líkamans. Greinilegt að vilji og sú hjálp sem hann hefur fengið hefur hjálpað gífurlega J

EN þar sem ég þarf að vakna í vinnuna klukkan 5:30 ( gleði, gleði ) þá held ég hætti núna og fari að  sofa. Það eru heldur ekki mikið fleiri nýtt hjá mér nema litlir hluti ( sem myndra reynda eina stóra heild ) og ég vona núna allra mest að rigning, þrumur og eldingar fari að hætta ... leiðist það að hjóla um Köben með regnhlíf ;)


Slökkviðið sakaði engan

úff, það var nú gott að slökkvilið kom og sakaði engan! 
mbl.is Eldur í rafmagnstöflu í leikskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

eldgömul frétt? Gerðist í Febrúar!

Í kjölfar flugvélarinnar frá Air France sá ég þessa frétt, og sagði vini mínum í Brasilíu frá henni .. leitaði svo um allt á netinu um þessa vél ( til að finna fréttina á ensku ) og fann þessa frétt sem passar akkurat við ;

http://edition.cnn.com/2009/WORLD/americas/02/09/brazil.plane.crash/index.html 

Eina sem passar ekki, er að þetta slys  gerðist í febrúar á þessu ári! Finnst allavega aaafar ólíklegt að sama vélin, með sama fjölda farþega hafi farist á sama stað - og 4 lifðu af í báðum slysum. 


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

er ég þá ó-normal?

1x á 10 daga fresti!? ...

Ég reiðist í allra, allra mesta lagi 1x á 10 vikna fresti, en meira eins og 10 mánaða fresti! 


mbl.is Bretar styggastir Evrópubúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti það verið betra?

Einkunn komin í hús, ég elska starfsnámið mitt, dúllerí með einum, hjóla um allt, sund, Júlíana hérna eftir minna en mánuð, Petra hingað í Júní, og allt gengur súúúúper vel! :)

 


Oskarshamn - myndir

ótrúlega fallegur bær í Svíþjóð sem ég eyddi 5 dögum í í fyrra. Get samt engan vegin ímyndað mér hvernig þetta stóra skip komst fyrir - nema að skipið sem siglir til Gotlands sé ekki til staðar lengur ..

Höfnin þarna minnti mig rosalega á höfnina í Reykjavík, og mér leið þvílíkt vel þarna, væri alveg til að fara aftur :) Skelli inn nokkrum myndum frá dvöl minni þarna í tilefni bloggsins :) 

 Turninn

 

 

 img_3653.jpg

 

 

 

 

 

 

 

img_3661.jpg

img_3663_831909.jpg

img_3656.jpg

 

 

 

 

 

 

 

img_3652.jpg

 

img_3600.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

img_3659.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Mig langar í sumarið aftur! 

 

 

 


mbl.is Eldur í farþegaskipi í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigubílaferðin mín frá Prag - hálfa leið til Berlín

Á ferð minni um mið Evrópu seint á síðasta ári enduðum ég og vinur minn á því að taka leigubíl frá Prag til Dresden, í Þýskalandi. Peningaeyðsla??

Ekki beint í þessu tilfelli samt sem áður.  Þennan dag komumst við að því að það er GLATAÐ að fara á puttanum frá Prag - á leið inn í Þýskaland. Fyrst biðum við í 1 tíma, og ætluðum svo að taka bara lestina - seem kostaði 100€ sem ég var EKKI að týma. þannig við fórum aftur á hitchhiking staðinn - og þar stopppaði þessi fíni leigubíll sem var á leiðinni til Leipzig og við gátum alveg farið með ...

 og þar með get ég sagt að ég hafi farið í leigubíl á milli landa, eina 200 km :D Þarf náttúrulega ekkert endilega að fylgja með sögunni að ég hafi í raun ekki borgað fyrir þetta, það er allt annað mál! 

Það er samt önnur saga frá þeirri ferð - það er þegar leigubílstjórinn henti okkur út á miðri hraðbraut, en sú saga fer ekki hér inn í þetta sinn!

 


mbl.is Tóku leigubíl frá Tékklandi til Danmerkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Julie til DK

Ef allt gengur eins og planið er þá eru að eins 10 vikur og 5 dagar þar til

Júlíana kemur til

 

Danmerkur!!!!!!!!! :) 

 

Sorry Júlíana, var bara hægt að gera upp í 36 punkta letur ;)

Og við erum ekki að tala um viku heimsókn, heldur nokkra vikna veru hérna úti. Kaupmannahöfn getur farið að undirbúa sig fyrir allmörg partý í sumar og rauðan bæ!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband